Sælu lesendur.
Það er svo sannarlega brjálað stuð hér á bloggsíðu Einars Haf og það ekki í fyrsta skipti. Lesendur fá aldeilis eitthvað fyrir sinn snúð og þeir geta reyndar fengið á snúðinn líka ef svo ber undir. Lesendur eru minntir á að mynda einfalda röð til að skrifa athugasemdir – ekki viljum við að athugasemdakerfið stíflist vegna óþarfa álags. Þess má til gamans geta að fimmtíu fyrstu sem gera læk verða örugglega blautir í fæturnar, nema þeir séu á góðum stígvélum.
Nokkuð hefur borið á saurgerlamengun upp á síðkastið. Lengi vel var talið að mengunin ætti upptök sín á bloggsíðu Einars Haf af augljósum ástæðum. Sérfræðingar telja sig þó hafa útilokað þann möguleika þar sem allur skíturinn sem Einar Haf hafi sett á netið gegnum tíðina sé enn á bloggsíðunni að stærstum hluta og hafi ekki lekið út í haf, nema þá Einar Haf. Það verður bara að hafa það þó svo að lesendur vaði aurinn á bloggsíðu Einars Haf upp að hnjám. Höfuðborgarbúar urðu auðvitað ævareiðir þegar uppgötvaðist að 100% hreint skólp blandað dömubindum, túrtöppum og eyrnapinnum hafði flætt út í sjó svo dögum skipti. Persónulega var mér skítsama en ég hef reyndar alltaf verið hrifinn af hreinum viðbjóð, þ.e.a.s. þegar viðbjóðurinn kemur á mann hreinn og ómengaður beint af skepnunni….eða úr skepnunni.
Evrópumeistaramót kvenna í knattspyrnu stendur nú yfir í Hollandi. Ísland tók þátt á mótinu og ljóst var strax í upphafi að liðið ætlaði sér stóra hluti. Kveðjuathöfnin í Keflavík var tilfinningaþrungin og nú skyldi leggja Evrópu að fótum sér. Því miður gleymdist að segja hinum liðunum frá þessu, allir leikir Íslands töpuðust og við komuna aftur til Íslands var liðið grýtt af almenningi og skammað af forsetanum…..nei kannski ekki alveg. Stelpurnar okkar reyndu hvað þær gátu en dómararnir „okkar“, óheppni og höfðatala urðu til þess að dæmið gekk ekki upp að þessu sinni. Það gengur bara betur næst.
Gunnar Okkar Nelson varð fyrir hrottalegri líkamsárás nýverið og ekki nóg með það heldur var árásin sýnd í beinni sjónvarpsútsendingu til milljóna manna um allan heim. Fyrst var potað í augun á Gunnari og síðan var hann kýldur í rot. Líkamsárás á borð við þessa, oftast kölluð UFC af fagmönnum, er að vísu ekkert ný af nálinni fyrir Gunnar Okkar og sennilega fékk hann eitthvað greitt fyrir þetta líka. Svo að enginn misskilji íþróttina þá má sem sagt ekki pota í augun á fólki en það má lemja það fast í höfuðið ítrekað og valda þannig hugsanlega óbætanlegum heilaskaða. Iss piss.
Verslunarmannahelgin er nú yfirvofandi eina ferðina enn. Til stóð að koma eins mörgum til Vestmannaeyja fyrir helgina og mögulegt er en yfirvöld eru ekki á sama máli og reyna hvað þau geta að torvelda samgöngur milli blands og peyja….hmmm, ég átti við milli lands og eyja. Það er kannski eins gott að Samgöngustofa var ekki til þegar eldgosið hófst í Vestmannaeyjum þarna um árið og flytja þurfti alla íbúana burt í snarhasti – þá hefði enginn komist neitt nema á löglega vottuðu farþegaskipi. Ef fram heldur sem horfir mun hluti dagskrár Þjóðhátíðar fara fram á bílastæðinu við Landeyjarhöfn – það ætti ekki að koma að sök ef það man einhver eftir því að fara í ríkið fyrst. Heill hellingur af öðrum hátíðum fer fram um komandi helgi, það er örugglega óþarfi að ég fari að þylja þetta allt upp eina ferðina enn (hinir fjölmörgu aðdáendur bloggsíðu Einars Haf kannast við þetta allt saman). Æludagar í Hörgársveit, Ein með pjöllu á Akureyri, Inníkúkinn í Reykjavík og svínarí í Ölskyldu- og Búsdýragarðinum eru bara nokkur dæmi og ég ætla ekki að fara nánar út í það.
Að gefnu tilefni er rétt að taka það fram að það er bannað að auglýsa kjóla í þingsal en hins vegar er ekkert sem bannar það að blóta og ragna í þingsal. Raunar er það tekið fram í siðareglum þingmanna að þingmenn megi ekkert gera í þingsalnum sem gæti gagnast þeim persónulega eða almenningi yfir höfuð. Hmm…kannski las ég þessar reglur ekki alveg rétt.
Nú er þingið fullt af flónum
flý ég senn í skjól.
Bjarni er í síðum buxum
Björt í bláum kjól.
Gleðileg jól. Eða verslunarmannahelgi.
Þess má til gamans geta að engin erlend skemmtiferðaskip komu við á þessari bloggsíðu á leið sinni til landsins, þrátt fyrir gylliboð Einars Haf.
Einar einar.
Tilvitnun dagsins:
Allir: LÍFIÐ ER YNDISLEGT….Í LANDEYJARHÖFN!!!
GÓÐUR EINAR HAF??
Gakktu hægt um gleðinnar dyr Einar um helgina.